GRÓÐURFRÉTTIR

brönugrös

Velkomin í þrítugasta og annað tölublaðið Gróðurfrétta!

Kæri lesandi!
Gleðilegt sumar! Ég vona að þú njótir efnisins og væri gaman að fá þitt álit. Hægur vindur og sól verma nú strendur, haga og hraun landsins.

Gróðurfréttir er fréttabréf Þundar, fyrirtækisins okkar, þar sem við leiðum saman grasa- og vistfræði, umhverfis- og náttúruvernd. Samskipti við ykkur lesendurna skipta okkur miklu máli; sendu endilega inn hugmyndir þínar um plöntur eða önnur græn málefni og hafðu þannig á áhrif á næsta hefti Gróðurfrétta. Þú getur einnig óskað eftir tengli á vefsíðuna þína á Eco-logy.com tenglasíðunni.

Þund býður upp á „Gróðurferðir“, þar sem þátttakendur fá sjálfir að kanna innlendan gróður og er leiðbeint um plönturnar. Ferðirnar eru fræðandi og einstök upplifun, oftast léttar eða hóflegar göngur þar sem við skoðum villta eða hálfvillta náttúru landsins: mosaþembur, mýrar og heiðar og stöldrum við í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæði. Við heimsækjum votlendi, blómaengi, strand- og fjallagróður og náttúrlega birki- og víðiskóga. Jafnframt gefst nægur tími til að njóta landslags, jarðfræði, dýralífs, sögustaða og sveitamenningar. Ferðirnar henta flestum, ungum jafnt sem öldnum, og öllum þeim sem hafa áhuga á góðri upplifun og kynningu á náttúru landsins.

Við bjóðum líka upp á ýmsa aðra faglega þjónustu, eins og umhverfisráðgjöf, rannsóknir, fræðslunámskeið og fagþýðingar. Við erum að byggja upp öflugan hóp náttúrufræðinga, leiðbeinenda, leiðsögumanna og þýðenda sem vilja leggja sitt af mörkum til vaxtar fyrirtækisins okkar. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt eða styðja starf okkar, endilega láttu vita!


---------------------------------------------------------------

Kveðja,
Soffía Arnþórsdóttir

GRÓÐURFRÉTTIR eru gefnar út af Þund, Hafnarfirði.
6. maí 2026 - Gróðurfréttir, tölublað #032



DSCN0531_opt.jpg
img_0490_opt.jpg
john-schnobrich-FlPc9_VocJ4-unsplash_opt.jpg



Fáðu nýjustu fréttir og tilboð frá Þund!

Get updates and special offers from Thund!




botanical-tours-002
Líffræði