
Velkomin í þrítugasta og þriðja hefti Gróðurfrétta!
Kæru lesendur!
Velkomin í Gróðurfréttir. Ég vona að ykkur líki efnið og hlakka til að sjá viðbrögðin. Sumarið er löngu komið: blóðberg, túnfíflar og vallhumlar sjást víða, sumar og sól leika um gróðurinn, asparfrjóið er út um allan bæ og fólk hugar að sumarferðum eða snýr aftur í bæinn.
Sendið okkur endilega bréf og greinar um gróður og græn málefni til birtingar í næsta hefti Gróðurfrétta. Eldri hefti má einnig skoða á netinu. Gróðurfréttir eru fréttarit Þundar og vettvangur fyrir grasafræði, vistfræði, umhverfismál og náttúruvernd. Þið getið óskað eftir tengli á vefinn ykkar í fréttabréfinu eða á tenglasíðunni. Ábendingar um efni í næsta fréttarit eru vel þegnar.
Við bjóðum nú upp á þrjú námskeið sem efla þekkingu þátttakenda á líffræði, vistfræði og hagnýtri grasafræði. Líffræðinámskeiðið veitir aðgengilega og áhugaverða innsýn í líffræði sem vísindagrein, tengsl hennar við aðrar greinar og einkenni alls lífs. Vistfræðinámskeiðið fjallar um helstu hugtök og undirstöðuatriði með áherslu á sérstöðu landsins. Á námskeiðinu í hagnýtri grasafræði er fjallað um innlendar plöntur og nytjar þeirra, dæmi tekin um ætar villtar plöntur og möguleikar á ræktun þeirra skoðaðir. Öll þrjú námskeiðin henta þeim sem vilja efla þekkingu sína á líffræði og lífríki landins, hvort sem markmiðið er persónulegur áhugi, undirbúningur fyrir frekara nám eða skýrari framtíðarsýn í námi og starfi.
Þund veitir einnig aðra líffræðiráðgjöf, meðal annars á formi umhverfismats, rannsókna, þýðinga og skoðunarferða. Við erum að byggja upp teymi líffræðinga, leiðsögufólks og fagþýðenda sem vilja taka þátt í uppbyggingu fyrirtækisins. Við viljum gjarnan heyra frá áhugasömum sem vilja leggja starfinu lið eða styðja það með öðrum hætti.
Njótið lestursins!
Soffía Arnþórsdóttir
*******
GRÓÐURFRÉTTIR eru gefnar út af Þund, Hafnarfirði. 10. ágúst 2026 - Gróðurfréttir, tölublað #033



Fáðu nýjustu fréttir og tilboð frá Þund!
Get updates and special offers from Thund!

